Hádegisfundur Ský - Nýsköpunarkapphlaupið
Nýsköpunarkapphlaupið - Hvernig verður nýsköpunarhugmynd að veruleika?
Víða er kallað eftir nýsköpun í heilbrigðisþjónustu. Frumkvöðlar og væntanlegir notendur ráða ráðum sínum og hefjast handa. Stuðningur er í boði í formi ýmissa styrkja og nýsköpunarhraðla á hugmynda- og þróunarstigi en hvað gerist svo? Hvernig kemst nýsköpunarlausn í almenna notkun og verður að veruleika?
Á þessu m viðburði lítum við til nýyfirstaðins heilbrigðismóts og skoðum ferilinn frá fjármögnun hugmyndar að innkaupum og rekstri ásamt því að heyra af NHS hraðlinum í Englandi. Við fáum kynningar á verkefnum sem fengu fjármagn úr fjárfestingarátaki ríkisstjórnarinnar til þess að auka nýsköpun í heilbrigðisþjónustu. Við munum fylgja þessum verkefnum eftir og taka stöðuna aftur á heilbrigðisráðstefnunni 24. febrúar nk.